Nokia 6110 Navigator Hjálp

background image

Nokia 6110 Navigator
Notendahandbók

4. útgáfa

background image

YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI
Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RM-122 er í
samræmi við grunnkröfur og önnur viðeigandi fyrirmæli tilskipunar
1999/5/EB. Eintak af yfirlýsingu um samkvæmni er að finna á slóðinni
http://www.nokia.com/phones/declaration_of_conformity/.

© 2008 Nokia. Allur réttur áskilinn.

Nokia, Nokia Connecting People, Nokia Care, Navi og Visual Radio eru vörumerki eða skrásett vörumerki
Nokia Corporation. Nokia tune og Visual Radio er tónmerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti
fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða vöruheiti viðkomandi eigenda.

Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta skjals þessa eða skjalsins alls er óheimil
nema að fyrir fram fengnu skriflegu samþykki Nokia.

This product includes software licensed from Symbian Software Ltd © 1998-2008.
Symbian and Symbian OS are trademarks of Symbian Ltd.

US Patent No 5818437 and other pending patents. T9 text input software Copyright © 1997-2008.
Tegic Communications, Inc. All rights reserved.

Java™ and all Java-based marks are trademarks or registered trademarks of
Sun Microsystems, Inc.

This product is licensed under the MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) for personal and
noncommercial use in connection with information which has been encoded in compliance with the
MPEG-4 Visual Standard by a consumer engaged in a personal and noncommercial activity and (ii)
for use in connection with MPEG-4 video provided by a licensed video provider. No license is granted
or shall be implied for any other use. Additional information, including that related to promotional,
internal, and commercial uses, may be obtained from MPEG LA, LLC. See <http://www.mpegla.com>.

Þessi vara hefur leyfið MPEG-4 Visual Patent Portfolio License (i) til einkanotkunar og án
viðskiptatilgangs í tengslum við upplýsingar sem hafa verið kóðaðar samkvæmt staðlinum
MPEG-4 Visual Standard af neytanda í persónulegum tilgangi og án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar
í tengslum við MPEG-4 hreyfimynd sem fengin er hjá hreyfimyndaveitu með leyfi. Ekkert leyfi er veitt eða
undirskilið til neinnar annarrar notkunar. Viðbótarupplýsingar, sem varða til dæmis notkun í auglýsingum,
innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá MPEG LA, LLC. Sjá <http://www.mpegla.com>.

Nokia framfylgir stefnu sem felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera breytingar
og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu skjali án undangenginnar tilkynningar.

AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA EÐA EINHVERJIR AF LEYFISVEITENDUM ÞESS
UNDIR ENGUM KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA TAPS Á GÖGNUM, TEKJUTJÓNI
EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU, TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM ÞAÐ VILL TIL.

INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“. UMFRAM ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA,
ER ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI BERUM ORÐUM EÐA UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA
EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS. Á ÞAÐ MEÐAL ANNARS, EN EKKI EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA
ÁBYRGÐ Á AÐ VARAN HENTI TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ ENDURSKOÐA
SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TILBAKA HVENÆR SEM ER ÁN UNDANGENGINNAR TILKYNNINGAR.

Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir þessar vörur getur verið breytilegt eftir svæðum.
Kannaðu það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia söluaðila þínum.

0434

background image

Útflutningstakmarkanir

Tæki þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur útflutningslögum og reglugerðum
í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki samræmast lögum eru
óheimilar.

TILKYNNING FRÁ FCC/INDUSTRY CANADA

Tækið þitt getur valdið truflunum á sjónvarpi eða útvarpi (til dæmis þegar sími er notaður nálægt
viðtökutæki). FCC eða Industry Canada geta krafist þess að þú hættir að nota símann ef ekki er hægt
að koma í veg fyrir slíkar truflanir. Ef þú þarft aðstoð skaltu hafa sambandi við þjónustuaðila í nágrenni
við þig. Þetta tæki er í samræmi við 15. hluta af reglum FCC. Notkun þess er háð eftirfarandi tveimur
skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda skaðlegum truflunum; og (2) Tækið verður að taka við öllum truflunum
sem það verður fyrir, þ.m.t. truflunum sem geta valdið óæskilegri virkni þess. Sérhverjar breytingar sem
Nokia hefur ekki samþykkt berum orðum geta ógilt heimild notandans til notkunar búnaðarins.

ÁN ÁBYRGÐAR
Þau forrit frá þriðju aðilum sem finna má í tækinu kunna að hafa verið búin til og vera í eigu aðila
eða fyrirtækja sem ekki tengjast Nokia. Nokia á ekki höfundarréttindi eða hugverkaréttindi að þessum
forritum þriðju aðila. Nokia tekur því hvorki ábyrgð á aðstoð við notendur, virkni þessara forrita eða þeim
upplýsingum sem fylgja forritunum eða efninu. Nokia veitir enga ábyrgð á þessum forritum þriðju aðila.

MEÐ NOTKUN SINNI VIÐURKENNIR NOTANDINN AÐ FORRITIN ERU AFHENT EINS OG ÞAU KOMA FYRIR
ÁN ÞESS AÐ NOKKUR ÁBYRGÐ SÉ VEITT, BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, AÐ ÞVÍ MARKI SEM HEIMILT ER
Í VIÐKOMANDI LÖGUM. NOTANDINN VIÐURKENNIR JAFNFRAMT AÐ HVORKI NOKIA NÉ TENGD FÉLÖG
VEITA NOKKURS KONAR FYRIRSVAR EÐA ÁBYRGÐ, BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, ÞAR Á MEÐAL EN EKKI
EINGÖNGU ÁBYRGÐ Á EIGNARRÉTTI, SÖLUHÆFNI EÐA HÆFNI TIL TILTEKINNAR NOTKUNAR, EÐA ÞVÍ
AÐ FORRITIN BRJÓTI EKKI GEGN EINKARÉTTI, HÖFUNDARRÉTTI, VÖRUMERKJARÉTTI EÐA ÖÐRUM
RÉTTINDUM ÞRIÐJA AÐILA.

4. útgáfa

background image

4