Nokia 6110 Navigator - microSD-kort

background image

microSD-kort

Aðeins skal nota samhæf microSD-kort sem Nokia hefur viðurkennt
til notkunar með þessu tæki. Nokia styðst við viðurkennda staðla
fyrir minniskort. Þó getur verið að sum kort sé ekki hægt að nota
að fullu með þessu tæki. Ósamhæf kort geta skaðað kortið og tækið
og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.

Geyma skal microSD-kort þar sem lítil börn ná ekki til.

Hægt er að auka tiltækt minni með microSD-minniskorti. Hægt er setja
microSD-kort í símann eða fjarlægja það án þess að slökkva á tækinu.

Mikilvægt: Fjarlægið ekki minniskortið meðan á aðgerð stendur og kortið
er í notkun. Ef kortið er fjarlægt í miðri aðgerð getur það valdið skemmdum
á minniskortinu og tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á kortinu geta skemmst.

background image

11

Minniskorti komið fyrir
Gættu þess að minniskort sem
inniheldur kort er ef til vill á sínum
stað í tækinu.

1. Snúðu bakhlið tækisins að þér

og opnaðu minniskortsraufina.

2. Settu minniskortið í raufina þannig

að gyllti snertiflöturinn snúi niður.
Ýttu kortinu varlega á sinn stað.

3. Lokaðu minniskortsraufinni.

Minniskort fjarlægt
1. Opnaðu raufina fyrir minniskortið.

2. Ýttu varlega á kortið til að losa það. Bíddu þar til

Fjarlægðu minniskort

og styddu á ’Í lagi’

birtist. Dragðu kortið út.

3. Lokaðu minniskortsraufinni.