Nokia 6110 Navigator - Stillingar

background image

Stillingar

Áður en hægt er að nota margmiðlunarboð, spjall, kallkerfi, tölvupóst,
samstillingu, straumspilun og vafra, verður að slá inn réttar stillingar í tækinu.
Tækið kann að setja sjálfkrafa upp stillingar fyrir vafra, margmiðlunarboð,
aðgangsstað og straumspilun samkvæmt SIM-kortinu sem notað er. Stillingarnar
er einnig hægt að fá í stillingaskilaboðum og þá þarf að vista þær í tækinu. Nánari
upplýsingar má fá hjá þjónustuveitunni eða næsta viðurkennda söluaðila Nokia.

Þegar stillingarnar berast í stillingaskilaboðum, og þær eru ekki vistaðar
og virkjaðar sjálfvirkt, birtist

1 ný skilaboð

á skjánum. Veldu

Sýna

til að opna

skilaboðin. Veldu

Valkostir

>

Vista

til að vista stillingarnar. Þú gætir þurft

að slá inn PIN-númerið sem þú fékkst hjá þjónustuveitunni.

background image

13