■ Leiðarmerki
Hægt er að vista upplýsingar um staðsetningu tiltekinna staða í tækinu með
leiðarmerkjum. Hægt er að nota vistuð leiðarmerki í samhæfum forritum, svo
sem í Navigator-forritinu.
Nýtt leiðarmerki er búið til með því að velja
Valmynd
>
Forrit
>
Leiðarm.
>
Valkostir
>
Nýtt leiðarmerki
. Staðsetningarbeiðni fyrir punkta núverandi staðar
er send með því að velja
Núv. staðsetning
. Hægt er að færa upplýsingarnar inn
handvirkt með því að velja
Færa inn handvirkt
.
Til að bæta leiðarmerki við forstilltan flokk skaltu velja það og
Valkostir
>
Bæta við flokk
. Veldu flokkana sem þú vilt bæta leiðarmerkinu í.
Til að senda eitt eða fleiri leiðarmerki í samhæfa tölvu skaltu velja
Valkostir
>
Senda
. Móttekin leiðarmerki eru sett í möppuna
Innhólf
í
Skilaboð
.