Quicksheet
Með Quicksheet er hægt að lesa Microsoft Excel-skrár á skjá tækisins.
Quicksheet styður töflureiknisskrár á .xls-sniði í Microsoft Excel 97, 2000, XP
og 2003. Forritið styður ekki öll sérkenni eða valkosti í áðurnefndum skráasniðum.
Töflureiknisskrár skoðaðar
Skruna skal um skjalið til að skoða það.
Til að skipta um vinnublöð skaltu velja
Valkostir
>
Vinnublað
.
Leitað er að texta innan gildisreits eða formúlu í töflureiknisskrá með því að velja
Valkostir
>
Leitarvalkostir
>
Finna
.
Til að breyta hvernig skráin birtist velurðu
Valkostir
og úr eftirfarandi valkostum:
Fletta
— Til að fletta milli bálka í skjali. Skrunaðu að þeim bálk sem þú vilt velja og
ýttu á hann.
Stækka/minnka
— Til að auka og minnka aðdrátt.
Festa rúður
— Til að halda röðum og dálkum fyrir ofan og vinstra megin við valda
reitinn sýnilegum.
Breyta stærð
— Til að stilla stærð dálka eða raða.