Stillingar Bluetooth-tengingar
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
>
Tenging
>
Bluetooth
.
Bluetooth
— Til að kveikja eða slökkva á Bluetooth.
Sýnileiki síma míns
>
Sýnilegur öllum
— Til að leyfa að önnur Bluetooth-tæki
geti ávallt fundið tækið þitt. Til að leyfa að hægt sé að finna tækið þitt á tilgreindu
tímabili skaltu velja
Tilgreina tímabil
. Til öryggis er þér ráðlagt að nota stillinguna
Falinn
þegar það er mögulegt.
Nafn síma míns
— Til að velja nafn á tækið.
Ytra SIM
>
Kveikt
— Til að gera SIM-kort tækisins virkt frá öðru tæki
(t.d. bílbúnaði) með Bluetooth-tækni (SIM access profile).
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins hægt að hringja og svara
símtölum með samhæfum aukahlut sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði). Ekki er hægt
að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er virk, nema í neyðarnúmerið sem er forritað
í tækið. Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu hefur
verið læst skal fyrst slá inn lykilnúmerið til að opna það.