Nokia 6110 Navigator - Kallkerfi

background image

Kallkerfi

Í kallkerfi (sérþjónusta) er um að ræða símtal yfir kallkerfisþjónustu í rauntíma
(sérþjónusta) sem komið er á með GSM/GPRS-símkerfi. Í kallkerfinu er komið
á beinu talsambandi með því að ýta á einn takka.

Áður en kallkerfisþjónusta er tekin í notkun þarf að tilgreina aðgangsstað
þjónustunnar og stillingar fyrir kallkerfið.

Í kallkerfissamskiptum talar einn aðili en hinir hlusta. Notendur skiptast á að
svara hver öðrum. Aðeins einn í hópnum getur talað í einu. Aðeins er hægt að
tala í tiltekinn tíma.

Símtöl hafa ávallt forgang fram yfir samtöl um kallkerfi.

background image

87

Að pakkagagnateljaranum undanskildum skráir tækið aðeins tveggja manna
tal í listanum yfir nýleg símtöl í

Notkunarskrá

. Þátttakendur í samtali ættu

að staðfesta móttöku samskipta þar sem það á við þar sem ekki er um aðra
staðfestingu að ræða á því að þeir hafi heyrt hringinguna.

Þjónustuveitan veitir upplýsingar um framboð, kostnað og áskrift að þjónustunni.
Hafa ætti í huga að reikiþjónusta kann að vera takmarkaðri en gerist með símtöl
um heimasímakerfið.

Mikill hluti þeirrar þjónustu sem stendur til boða í hefðbundnum símtölum
(svo sem talhólf) er ekki til staðar í samskiptum um kallkerfi.