Nokia 6110 Navigator - Stjórnandi forrita

background image

Stjórnandi forrita

Þú getur sett upp tvenns konar forrit og hugbúnað í tækinu þínu:

J2ME

TM

-forrit byggð á Java

TM

-tækni með endingunni .jad eða .jar.

Ekki er hægt að setja PersonalJava

TM

-forrit upp í tækinu þínu.

Önnur forrit og hugbúnaður sem henta Symbian-stýrikerfinu.
Uppsetningarskrárnar hafa endinguna .sis. Settu aðeins upp hugbúnað
sem er sérstaklega hannaður fyrir tækið.

Hægt er að flytja uppsetningaskrár í tækið frá samhæfðri tölvu, hlaða
þeim niður meðan þú vafrar eða senda þær til þín sem margmiðlunarboð,
sem tölvupóstsviðhengi eða með Bluetooth-tengingu. Þú getur notað
Nokia Application Installer í Nokia PC Suite til að setja upp forrit í tækinu
eða á minniskorti.

Uppsetningarskrár (.sis) eru áfram í minni tækisins eftir að forrit þeirra hafa verið sett upp
á samhæfu minniskorti. Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því að ekki sé hægt að
vista aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia PC Suite til að taka öryggisafrit af
uppsetningarskrám og setja afritið á samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu nota Skráarstjórann
til að eyða uppsetningarskránum úr minni tækisins. Sjá „PC Suite“ á bls. 82 og „Skráarstjórn“
á bls. 92. Ef .sis-skráin hefur verið send sem viðhengi í skilaboðum skal eyða skilaboðunum
úr innhólfinu.

Til að opna

Stjórn. forrita

skaltu velja

Valmynd

>

Stillingar

>

Gagnastjóri

>

Stj. forrita

.