Nokia 6110 Navigator - Hugbúnaður uppfærður

background image

Hugbúnaður uppfærður

Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið meðan á hugbúnaðaruppfærslu
stendur, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl. Aðeins er hægt að nota
það að uppfærslunni lokinni og þegar það hefur verið endurræst. Taka
skal öryggisafrit af gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.

Það að hlaða niður hugbúnaði getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitu. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.

Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður
en uppfærslan er ræst.

background image

94

Til að skoða núverandi útgáfu hugbúnaðarins skaltu velja

Valmynd

>

Stillingar

>

Gagnastjóri

>

Stj. tækis

>

Uppfærslur

.

Mælt er með því að vistað sé afrit af mikilvægum persónulegum upplýsingum og
skrám (svo sem tengiliðum, myndum og skilaboðum) annaðhvort með því að nota
Nokia PC Suite eða minniskort í símanum áður en hugbúnaðurinn er uppfærður.

1. Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Gagnastjóri

>

Stj. tækis

>

Uppfærslur

>

Leita að

uppfærslum

.

Ef hægt er að fá uppfærslur fer tækið að hlaða þeim niður.

2. Að því loknu skaltu svara

þegar spurt er hvort halda eigi uppsetningu áfram.

Til að hefja uppsetningu síðar skaltu velja

Nei

.

Til að hefja uppsetningu síðar skaltu velja

Valmynd

>

Stillingar

>

Gagnastjóri

>

Stj. tækis

>

Setja upp uppfærslu

.

Ef tilgreint er eitt miðlarasnið er það notað sem sjálfgefið. Ef ekkert miðlarasnið
hefur verið tilgreint biður tækið þig um að búa það til, eða velja af lista yfir
miðlara ef um fleiri en einn er að ræða.

Hafðu samband við þjónustuveituna til að fá stillingarnar.