Nokia 6110 Navigator - Hleðsla og afhleðsla

background image

Hleðsla og afhleðsla

Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta tæki er ætlað til notkunar með BP-5M
rafhlöðu. Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi hleðslutækjum.
AC-3, AC-4, AC-5 og DC-4 hleðslutæki og CA-44 millistykki fyrir hleðslutæki. Hægt er að
hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér.
Þegar tal- og biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins
skal nota rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með
hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki. Notkun ósamþykktra
rafhlaða eða hleðslutækja getur valdið eldhættu, sprengingu, leka eða haft aðra áhættu í för
með sér.

Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan
tíma, kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og tengja það
aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.

Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í
notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla
getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki
í notkun.

Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F).
Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri
rafhlöðu kann að hætta að starfa tímabundið. Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif
á rafhlöður.

Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið fyrir
slysni þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni tengingu
milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til
dæmis getur þetta gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli
skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.

background image

97

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Rafhlöður geta einnig sprungið
ef þær skemmast. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir. Skila
skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.

Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja, afmynda, gata eða tæta rafhlöður.
Ef rafhlaða lekur má vökvi hennar ekki komast í snertingu við húð eða augu. Ef slíkt
kemur fyrir skal skola húð eða augu umsvifalaust með vatni, eða leita til læknis.

Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í rafhlöðuna sem ekki eiga að vera þar,
dýfa rafhlöðunni í vatn eða aðra vökva, eða bleyta hana.

Röng notkun rafhlöðunnar hefur í för með sér eld- eða sprenghættu, eða aðra hættu.
Ef þú missir tækið eða rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart yfirborð, og telur að rafhlaðan
hafi skemmst, skaltu fara með hana til þjónustuvers til skoðunar áður en þú heldur áfram
að nota hana.

Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki
eða rafhlöðu. Geyma skal rafhlöðuna þar sem lítil börn ná ekki til.