Nokia 6110 Navigator - Læsingarnúmer

background image

Læsingarnúmer

Læsingarnúmerið (5 tölustafir) hindrar að tækið sé notað í leyfisleysi. Forstillta
númerið er 12345. Breyttu númerinu, og geymdu nýja númerið á leyndum og
öruggum stað sem er fjarri tækinu. Í „Öryggi“ á bls. 72 er fjallað um hvernig
númerinu er breytt og tækið stillt þannig að það biðji um númerið.

Ef þú slærð inn rangt læsingarnúmer fimm sinnum í röð hundsar tækið frekari
innslátt þess. Bíddu í fimm mínútur og sláðu númerið inn aftur.

Þegar tækið eða takkaborðið er læst kann að vera hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið
sem er forritað í tækið.