PIN-númer
PIN-númerið (Personal Identification Number) og UPIN-númerið (universal
personal identification number) (4-8 tölustafir) hindra að SIM-kortið sé notað
í leyfisleysi. Sjá „Öryggi“ á bls. 72. PIN-númerið fylgir yfirleitt með SIM-kortinu.
PIN2-númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir hugsanlega SIM-kortinu og er nauðsynlegt
til að komast í sumar aðgerðir.
Nauðsynlegt er að slá inn PIN-númer öryggiseiningar til að fá aðgang
að upplýsingum í öryggiseiningunni. PIN-númer öryggiseiningar fylgir
SIM-kortinu ef það inniheldur öryggiseiningu.
PIN-númer undirskriftar er nauðsynlegt fyrir rafrænu undirskriftina. PIN-númer
undirskriftar fylgir SIM-kortinu ef það inniheldur öryggiseiningu.