Nokia 6110 Navigator - Stilling hljóðstyrks

background image

Stilling hljóðstyrks

Til að stilla hljóðstyrk eyrnatóls eða hátalara meðan símtal fer fram eða þegar
hlustað er á hljóðskrá skaltu ýta á hljóðstyrkstakkana.

Til að gera hátalarann virkan meðan símtal fer fram skaltu velja

Hátalari

.

Til að gera hátalarann óvirkan meðan símtal fer fram skaltu velja

Símtól

.

Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn er notaður
því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.