
■ Hringt úr símanum
1. Sláðu inn svæðis- og símanúmerið í biðstöðu. Ýttu á hreinsitakkann til að
fjarlægja tölu.
Þegar hringt er til útlanda skaltu ýta tvisvar á * til að fá fram alþjóðlega
forskeytið (+ kemur í stað alþjóðlega svæðisnúmersins) og slá inn
landsnúmerið, svæðisnúmerið (án 0, ef með þarf) og svo símanúmerið.
2. Ýttu á hringitakkann til að hringja í númerið.
Til að stilla hljóðstyrk meðan á símtali stendur skaltu ýta á hljóðstyrkstakkana.
3. Ýttu á hætta-takkann til að leggja á eða hætta við að hringja.
Til að hringja úr
Tengiliðir
skaltu velja
Valmynd
>
Tengiliðir
. Skrunaðu að
tilteknu nafni eða sláðu inn fyrstu stafi nafnsins og skrunaðu að nafninu.
Ýttu á hringitakkann til að hringja í númerið.
Til að hringja í talhólfið (sérþjónusta) skaltu halda 1 inni þegar síminn er
í biðstöðu. Tilgreina verður númer talhólfs til að hægt sé að hringja í það.
Sjá „Talhólf“ á bls. 79.
Til að hringja í nýlega valið númer skaltu ýta á hringitakkann í biðstöðu. Listi yfir
þau 20 númer sem þú hefur hringt í eða reynt að hringja í birtist. Veldu númerið og
ýttu á hringitakkann.
Til að hringja kallkerfissímtal, sjá „Kallkerfi“ á bls. 86.