Nokia 6110 Navigator - Myndsímtali komið á 

background image

Myndsímtali komið á

Í myndsímtali geta þú og viðmælandi þinn séð rauntíma hreyfimynd hvor
af öðrum. Viðtakandi þinn sér þá hreyfimyndina sem myndavélin þín tekur.

Til að geta átt myndsímtal þarftu að vera innan þjónustusvæðis UMTS-símkerfis.
Þú gætir þurft að nota USIM-kort til að geta átt myndsímtal. Þjónustuveitan
gefur upplýsingar um myndsímtalsþjónustu og áskrift að henni. Aðeins er hægt
að koma á myndsímtali við einn aðila í einu. Hægt er að koma á myndsímtali við
samhæfan farsíma eða ISDN-tengd tæki. Ekki er hægt að koma á myndsímtölum
þegar annað símtal, myndsímtal eða gagnasímtal er virkt.

Tákn:

Tækinu berst ekki hreyfimynd (annaðhvort sendir viðtakandinn ekki

hreyfimyndina eða símkerfið sendir hana ekki).

Þú hefur hafnað myndsendingu úr tækinu þínu.

1. Sláðu inn númerið í biðstöðu eða veldu

Valmynd

>

Tengiliðir

og skrunaðu

að viðkomandi tengilið.

2. Veldu

Valkostir

>

Hringja

>

Myndsímtal

.

Það getur tekið smástund að koma á myndsímtali.

Bíð eftir hreyfimynd

birtist.

Ef ekki tekst að koma á tengingu (t.d. ef símkerfið styður ekki myndsímtöl eða
móttökutækið er ekki samhæft) er spurt hvort þú viljir hringja venjulegt símtal
eða senda textaskilaboð í staðinn.

Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær hreyfimyndir og heyrt hljóð
úr hátalaranum. Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu (

) og þá heyrir

þú í honum og sérð e.t.v. kyrrmynd eða gráan bakgrunn.

Ýttu á hljóðstyrkstakkana til að auka eða minnka hljóðstyrkinn meðan á símtali
stendur.

Til að velja á milli þess að sýna hreyfimyndir eða að heyra einungis hljóð
skaltu velja

Virkja

eða

Óvirkja

>

Hreyfimynd

,

Hljóð

eða

Hljóð & hreyfimynd

.

Til að stækka eða minnka eigin mynd skaltu velja

Stækka

eða

Minnka

.

Stækkunar/minnkunarvísirinn sést efst á skjánum.

Hægt er að víxla hreyfimyndunum sem hafa verið sendar eða tekið hefur
verið á móti á skjánum með því að velja

Víxla myndum

.

Jafnvel þó þú hafnir myndsendingu í myndsímtali verður tekið gjald fyrir
símtalið sem myndsímtal. Fáðu verðupplýsingar hjá símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni.

Ýttu á hætta-takkann til að ljúka myndsímtalinu.

background image

24