Nokia 6110 Navigator - Forsendur fyrir samnýtingu hreyfimynda

background image

Forsendur fyrir samnýtingu hreyfimynda

Þar sem

Samn. hreyfim.

krefst tengingar við þriðju kynslóðar farsímakerfi

(UMTS) veltur

Samn. hreyfim.

á því hvort slíkt símkerfi sé til staðar. Upplýsingar

um farsímakerfi og gjald fyrir notkun forritsins fást hjá þjónustuveitunni. Til að
hægt sé að nota

Samn. hreyfim.

þarftu að gera eftirfarandi:

• Gættu þess að tækið sé stillt á tengingu milli einstaklinga sem einnig er

þekkt undir heitinu SIP-tenging (Session Initiation Protocol). SIP-stillingarnar
fást hjá þjónustuveitunni. Nauðsynlegt er að vista þær í tækinu. Ef þú veist
SIP-vistfang viðtakandans getur þú slegið það inn á tengiliðaspjald hans,
valið

Valmynd

>

Tengiliðir

, tengilið og

Valkostir

>

Breyta

>

Valkostir

>

Bæta við upplýsing.

>

Samnýttur skjár

. Sláðu inn SIP-vistfangið á forminu

sip:notandanafn@vistfang (hægt er að nota IP-tölu í stað vistfangs).

• Gakktu úr skugga um að þú hafir virka UMTS-tengingu og sért innan

dreifisvæðis UMTS-símkerfis. Ef þú byrjar samnýtinguna meðan þú ert innan
UMTS-farsímakerfis og skipt er yfir í GSM-farsímakerfi, lýkur samnýtingunni
en símtalið heldur áfram.

• Gakktu úr skugga um að bæði sendandinn og viðtakandinn séu skráðir

á UMTS-símkerfið. Ef þú býður einhverjum í samnýtingu og slökkt er á tæki
viðkomandi aðila eða hann er ekki innan UMTS-þjónustusvæðis veit hann ekki
að þú ert að senda honum boð. En þú færð villuboð um að viðtakandinn geti
ekki samþykkt boðið.