Nokia 6110 Navigator - Kort flutt úr tölvu

background image

Kort flutt úr tölvu

Tölvan þarf að vera með eftirfarandi búnað til að hægt sé að flytja kort:

• Microsoft Windows XP stýrikerfi (eða nýrra)

• Nokia PC Suite 6.82 eða nýrri útgáfu

• Nokia Map Manager forrit (viðbótarforrit við PC Suite)

Nota skal Nokia Map Manager til að flytja kort á milli tölvu og minniskorts, til
dæmis þegar efni á minniskorti er afritað yfir á nýtt minniskort. Tengdu tækið
við tölvu með samhæfri USB-snúru og veldu

PC Suite

til að tengjast.

Til að breyta sjálfgefinni stillingu USB-tengingar skaltu velja

Valmynd

>

Stillingar

>

Tenging

>

USB-snúra

>

USB-stilling

.

Nokia Map Manager er til þess gerður að flytja kortaskrár eins og best verður
á kosið. Nánari upplýsingar um flutning korta með Nokia Map Manager, sjá
Nokia Map Manager hjálpartextann.