Nokia 6110 Navigator - Sjálfvirk ritun

background image

Sjálfvirk ritun

Með flýtiritun er hægt að slá inn hvaða staf sem er með því að ýta aðeins einu
sinni á hvern takka. Kveikt er á flýtirituninni með því að ýta endurtekið á # þar
til

birtist. Þá er kveikt á flýtirituninni í öllum ritlum tækisins.

1. Ýttu á takkana 29 til að slá inn tiltekið orð. Ýttu aðeins einu sinni á hvern

takka fyrir hvern staf. Orðið breytist í hvert skipti sem stutt er á takka.

Til að fá upp algengustu greinarmerki skaltu ýta á 1. Til að fá upp fleiri
greinarmerki og sérstafi skaltu halda * inni.

Ýttu á hreinsitakkann til að eyða staf. Haltu hreinsitakkanum inni til að
eyða fleiri en einum staf.

2. Þegar þú hefur slegið inn orð og það er rétta orðið skaltu staðfesta það með

því að skruna áfram eða slá inn bil.

Ef orðið er ekki rétt skaltu ýta endurtekið á * til að skoða önnur svipuð orð
sem orðabókin finnur.

Ef ? birtist aftan við orðið inniheldur orðabókin ekki orðið sem þú vildir slá
inn. Veldu

Stafa

til að bæta orðinu inn í orðabókina. Sláðu inn orðið (allt að

32 stafir) með hefðbundinni textaritun og veldu

Í lagi

. Þá er orðinu bætt inn

í orðabókina. Þegar orðabókin er orðin full er elsta orðinu sem var sett inn
í hana skipt út fyrir nýjasta orðið.