Nokia 6110 Navigator - 6. Skilaboð

background image

6. Skilaboð

Til að opna

Skilaboð

skaltu velja

Valmynd

>

Skilaboð

. Þá sérðu

Ný skilaboð

og lista yfir sjálfgefnar möppur:

Innhólf

— inniheldur móttekin skilaboð, fyrir utan tölvupóst og skilaboð

frá endurvarpa. Tölvupóstur er vistaður í möppunni

Pósthólf

. Til að lesa skilaboð

frá endurvarpa skaltu velja

Valkostir

>

Upplýs. frá endurvarpa

.

Mínar möppur

— Til að flokka skilaboð í möppur.

Pósthólf

— til að koma á tengingu við ytra pósthólfið þitt til að sækja nýjan

tölvupóst eða skoða tölvupóst sem þú hefur áður sótt án tengingar. Þegar búið
er að skilgreina stillingar fyrir nýtt pósthólf birtist heiti þess í stað

Pósthólf

.

Uppköst

— vistar drög að skilaboðum sem hafa ekki verið send.

Sendir hlutir

— vistar skilaboð sem eru send, nema þau sem eru send um

Bluetooth. Sjá

Vista send skilaboð

í „Aðrar stillingar“ á bls. 42.

Úthólf

— vistar tímabundið skilaboð sem bíða sendingar.

Tilkynningar

(sérþjónusta) — vistar skilatilkynningar um send textaskilaboð,

sérstakar skilaboðategundir, svo sem nafnspjald, og margmiðlunarboð sem þú
hefur sent. Hugsanlega geturðu ekki fengið skilatilkynningar um
margmiðlunarboð sem hafa verið send á tölvupóstfang.