Nokia 6110 Navigator - Ritun og sending skilaboða

background image

Ritun og sending skilaboða

Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMS-skilaboða. Ef myndin sem bætt er inn
fer yfir þessi mörk gæti tækið minnkað hana þannig að hægt sé að senda hana með MMS.

Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir takmörkin fyrir ein skilaboð. Lengri skilaboð eru
send sem tvö eða fleiri skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi við það.
Stafir sem nota kommur eða önnur tákn ásamt stöfum sumra tungumála, taka meira pláss
en venjulegir stafir og takmarka þannig þann stafafjölda sem hægt er að senda í einum
skilaboðum.

Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og birt margmiðlunarskilaboð.
Útlit skilaboða getur verið breytilegt eftir móttökutækinu.

background image

35

Áður en hægt er að senda og taka á móti textaboðum, margmiðlunarboðum
eða tölvupósti eða tengjast við ytra pósthólfið verða réttar tengingarstillingar
að vera fyrir hendi. Sjá „Stillingar skilaboða“ á bls. 39.

1. Til að búa til skilaboð skaltu velja

Valmynd

>

Skilaboð

>

Ný skilaboð

og tegund

skilaboða.

Til að búa til hljóðskilaboð, sjá „Nokia Xpress hljóðskilaboð“ á bls. 35.

2. Veldu viðtakendur eða hóp viðtakenda úr

Tengiliðir

eða sláðu inn símanúmer

eða netfang viðtakanda í

Viðtak.

-reitinn. Aðgreindu viðtakendur með

semíkommu (;).

3. Þegar tölvupóstur eða margmiðlunarboð eru búin til skaltu skruna niður

að efnisreitnum og slá inn hvert efni skilaboðanna er.

4. Skrunaðu niður til að fara í textasvæði skilaboðanna.

5. Skrifaðu skilaboðin.

Þegar þú skrifar skilaboðin sýnir lengdarvísir skilaboðanna hve marga stafi þú
getur slegið inn. Til dæmis merkir 10 (2) að enn megi bæta 10 stöfum við texta
sem sendur verður í tveim hlutum.

Til að nota sniðmát fyrir textaskilaboðin skaltu velja

Valkostir

>

Bæta í

>

Sniðmáti

. Til að búa til kynningu með sniðmáti sem senda skal sem

margmiðlunarboð skaltu velja

Valkostir

>

Búa til kynningu

. Til að nota sniðmát

fyrir margmiðlunarboðin skaltu velja

Valkostir

>

Setja inn hlut

>

Sniðmát

.

Til að setja inn hlut (skrá) í margmiðlunarboð skaltu velja

Valkostir

>

Setja

inn hlut

>

Mynd

,

Hljóðskrá

eða

Myndskeið

. Til að búa til og setja inn nýjan hlut

(skrá) skaltu velja

Valkostir

>

Setja inn nýja

>

Mynd

,

Hljóðskrá

,

Myndskeið

eða

Skyggnu

. Þegar hljóði er bætt við birtist

.

Til að bæta hlut (skrá) við tölvupóst skaltu velja

Valkostir

>

Bæta inn

>

Mynd

,

Hljóðskrá

,

Myndskeiði

,

Minnismiða

eða

Sniðmáti

.

6. Veldu

Valkostir

>

Senda

til að senda skilaboðin.