■ Myndum breytt
Til að breyta myndum í
Gallerí
skaltu skruna að myndinni og velja
Valkostir
>
Breyta
.
Til að klippa mynd skaltu velja
Valkostir
>
Nota áhrif
>
Skurður
. Mynd er
klippt handvirkt með því að velja
Handvirkt
eða tiltekið hlutfall af listanum. Ef þú
velur
Handvirkt
birtist kross efst í vinstra horni myndarinnar. Skrunaðu til að velja
svæðið sem á að klippa og veldu
Festa
. Annar kross birtist neðst í hægra horninu.
Veldu aftur svæðið sem á að klippa. Til að stilla aftur fyrsta svæðið skaltu velja
Til baka
. Þau svæði sem eru valin mynda ferhyrning utan um þá mynd sem
kemur út úr klippingunni.
Ef þú velur hlutfall skaltu velja efra hornið til vinstri þar sem á að klippa.
Notaðu skruntakkann til að stilla auðkennda svæðið. Hægt er að frysta valið
svæði með því að ýta á skruntakkann. Til að færa til svæðið innan myndarinnar
skaltu skruna. Ýttu á skruntakkann til að velja svæðið sem á að klippa.
Hægt er að minnka rauðan lit í augum með því að velja
Valkostir
>
Nota áhrif
>
Laga rauð augu
. Færðu krossinn að auganu og ýttu á skruntakkann. Lykkja birtist á
skjánum. Skrunaðu upp, niður, til vinstri og til hægri til að breyta stærð lykkjunnar
svo hún passi við augað. Ýttu á skruntakkann til að minnka rauða litinn.
Flýtivísar í myndvinnslu:
• Til að skoða mynd í fullri skjástærð skaltu ýta á *. Ýttu aftur á * til að fara aftur
í venjulegan skjá.
• Ýttu á 3 eða 1 til að snúa mynd réttsælis eða rangsælis.
• Ýttu á 5 eða 0 til að súmma að eða frá.
• Flett er um súmmaða mynd með því að skruna upp, niður, til vinstri eða hægri.
46